Hljóðbókasafn Íslands er bókasafn fyrir lesblinda, blinda, sjónskerta og aðra sem ekki geta nýtt sér hefðbundið prentað letur. Safnið lánar þeim hljóðbækur. Sérstök áhersla er lögð á þjónustu við námsmenn. Stærstur hluti útlánanna er þó almennt efni, svo sem skáldsögur, ævisögur, leikrit og bækur um ýmis málefni.Mestur hluti af þjónustu safnsins fer fram gegnum niðurhal, síma og með pósti til lánþega
Staðsetning safnsins, sími og fleira
Safnið er til húsa á 1. hæð að Digranesvegi 5 í Kópavogi.
Afgreiðslan er opið frá klukkan 10 til 16 en hinsvegar er safnið opið á netinu allan sólahringinn, vilji lánþegar nýta sér þann kost.
Aðalsímanúmer safnsins er 54 54 900 . Fax númer er 54 54 906.
Vefsíða safnsins er http://www.hljodbokasafn.is/ (http://www.hbs.is/) og netfang er hljodbokasafn@hljodbokasafn.is.
Félag lesblindra á Íslandi hefur gengið til samstarfs við Atlas Primer um að útbúa raddstýrðan gervigreindarkennara fyrir íslenskt námsefni. Með samstarfinu er stigið stórt skref í að auka aðgengi lesblindra að námsefni, og færa menntakerfið inn í framtíðina. Atlas Primer er íslenskt sprotafyrirtæki í menntatækni sem hefur einsett sér að auka aðgengi að námsefni fyrir […]
Read More
Það er mikið til af góðu kennsluefni hjá bresku vinum okkar í lesblindusamtökunum BDA. Hér er síða sem hefur að geyma alls konar vefmyndskeið og eru mörg þeirra frí. https://www.bdadyslexia.org.uk/shop/webinars
Read More
Nú höfum við bætt við sérstakri síðu undir hjálparefni þar sem við munum deila áhugaverðum hlaðvörpum um lesblindu og efni sem tengist henni. Við ríðum á vaðið með því að deila 2 hlaðvörpum sem eru viðtöl við formann og framkvæmdastjóra Félags lesblindra á Íslandi sem blaðamaðurinn Sigurður Már Jónsson tók við þá Guðmund S. […]
Read More
Kæru félagsmenn velunnarar og vinir nú er búið að draga í jólahappdrættinu 2019. Viðtökur voru mjög góðar og seldust allir 1200 miðarnir á tímabilinu 6. Nóv. til 18. Des. 2019. Við þökkum öllum veittan stuðning og óskum ykkur gleði og friðar á nýju ári. Hér eru svo tölurnar sem dregnar voru út klukkan 12.00 […]
Read More
Haustið 2019 var sett af stað fjáröflun á vegum félagsins til þess að safna fé til þess að rannsaka áhrif kvíða lesblindra barna. Markmið rannsóknarinnar er að skilja betur þær áskoranir sem lesblind glíma við og auka möguleika á að hægt verði að styðja betur við lesblind börn. Fjáröflunin er unnin í samvinnu við […]
Read More
Félagið er ekki á fjárlögum og reiðir sig því á styrki frá samtökum, fyrirtækjum og einstaklingum. Félagið fer reglulega í fjáraflanir til að standa undir starfi félagsins og til að geta unnið að hagsmunum lesblindra.
Read More
Við erum að hefja okkar árlegu jólahappdrættissölu sem er okkur svo mikilvæg. Ef það koma jólasveinar til ykkar þá vonumst við til þess að þið takið vel á móti þeim 🙂
Read More
Nú er haustið komið og með því skólaheimsóknir, vinnustaðaheimsóknir og námskeið…endilega skoðið viðburði og hafið samband ef þið viljið fá skólaheimsókn eða fræðslu á vinnustaðinn. Við reynum að stilla verði í hóf. Sjá nánar
Read More
Við erum sem betur fer með hjálp alheimsnetsins með betra aðgengi að rannsóknum um lesblindu og erum því að fá og nýjar spennandi upplýsingar reglulega. Er hægt að greina lesblindu og vinna með hana fyrr á æviskeiðinu? Hér má lesa um nýlega rannsókn á tengslum heyrnar og lesblindu. https://www.sciencedaily.com/releases/2017/10/171031130312.htm
Read More
Endilega hafið samband ef þið hafið einhverjar óskir. Við reynum að koma til móts við þær og sérsníðum námskeið fyrir skóla, vinnustaði og símenntunarstöðvar. Lesa má um námskeiðin okkar hér Upplýsingar um næstu námskeið og skráning er hér
Read More