Um félagið

Endilega deildu okkur

Félag lesblindra á Íslandi (FLÍ) eru frjáls félagasamtök sem vinna að hagsmunamálum lesblindra með það að markmiði að jafna stöðu þeirra, í leik, starfi og menntun. Félagið vinnur markvisst að því að auka vitund og þekkingu á lesblindu. Félagsmenn voru í árslok 2020 um 2.000.

FLÍ var stofnað 26. mars 2003. Frá þeim tíma hefur félagið unnið ötullega og til að mynda gefið út kennslu- og fræðslubækur um lesblindu, svo og hljóðbók og heimildarmynd um lesblindu, gefið út bækling um lesblindu á vinnustað, sinnt öflugu kynningarstarfi innan skóla og á vinnustöðum, uppfært heimasíðu og haldið ráðstefnur og fræðslufundi.

Capacent- Gallup vann könnun um lesblindu á Íslandi fyrir félagið. Þar kemur fram að 18 prósent Íslendinga glíma við lestrarörðugleika. FLÍ er eitt af stærri aðildarfélögum Öryrkjabandalags Íslands með um 2.000 félagsmenn og tekur þátt í samstarfi skyldra samtaka í nágrannalöndum.

Félagið hefur haldið úti rekstri skrifstofu frá árinu 2008 og réð þá starfsmann til félagsins svo lesblindir og aðstandendur þeirra hefðu aðila til að leita til varðandi aðstoð, hagsmunagæslu, kennslu o.fl.

Starfsmaður félagsins sinnir jafnframt þessum verkefnum, umsjón með heimasíðu, fréttabréfi, situr í nefndum og ráðum Öryrkjabandalags Íslands til að mynda í samráðshóp á vegum ráðuneytisins um Hljóðbókasafn Íslands. Starfsmaðurinn sinnir kennslu fyrir fullorðna í samstarfi við símenntunarstöðvar sem og ýmsu öðru kynningar og fræðslustarfi á vegum félagsins s.s. eins og fræðslu um lesblindu víðsvegar um landið, í skólum og vinnustöðum.

Til félagsins leita lesblindir og aðstandendur þeirra eftir stuðningi og fræðslu og leggur félagið áherslu á að þjónusta einstaklinga endurgjaldslaust en félagslegum aðstæðum lesblindra eru oft ábóta vant . Félagið leiðbeinir um rétt varðandi þjónustu og aðstoðar þá að nálgast slíka þjónustu því oft er tregt um þær í opinberu kerfi. Félagið sinnir hagsmunagæslu aðila sem leita til þess einkum varðandi skólastarf.

Félagið býður upp á einstaklingsráðgjöf varðandi hjálpartæki. Félagsmönnum býðst að panta tíma þar sem starfsmaður fer yfir hvaða hjálpartæki gætu nýst og aðstoðar við að nálgast þau og uppsetningu síma, spjaldtölvum og tölvum.

Félagið hefur undanfarin ár boðið upp á námskeið fyrir fullorðna í samstarfi við símenntunarstöðvar stundum með sér námskeiðum og þátttöku í kennslu á lengri námskeiðum eins og t.d. Aftur í nám. Á námskeiðunum félagsins er farið yfir hvernig megi nýta tölvur og tækni við lestur og skrift.

Árið 2015 gaf félagið út veglegan bækling um lesblindu á vinnustað sem miðar að því að ráðgjöf og auknum skilningi á því hvernig lesblinda birtist á vinnustaðnum bæði fyrir starfsmann og vinnuveitanda. Þá stendur vinnustöðum til boða ráðgjöf varðandi aðlögun fyrir lesblinda.

Enskt heiti félagsins er The Iceland Dyslexia Association.

Aðalstjórn:

Guðmundur Johnsen
Formaður stjórnar,
GSM: 892 1452
email: gsj(hjá)habilis.is

Einar Hrafn Jóhannesson 
Ritari
Fálkastíg 5
GSM:820 4319 HS: 564 6015
email: einar(hjá)fli.is
Snævar Ívarsson
Framkvæmdastjóri
Hraunbæ 13
GSM:824 5010 HS: 588 3337
email: snaevar(hjá)fli.is

Guðný Ólöf Helgadóttir
Grenimel 4
s:868 1463
email: gudny(hjá)fli.is

<><><><><><><>

Varastjórn
Fríða Kristín Magnúsdóttir
Unnarbraut 5
GSM 697 4453
fridakm@hotmail.com
Bjarney Hafsteinsdóttir
Hraunbæ 188
HS: 567 3767
email: haukurhrafn@cool.is
Margrét Björk
Fálkakletti 7,
HS: 431 1399 GSM: 864 2955

Markaðs og kynningarmál eru á höndum Snævars Ívarssonar framkvæmdastjóra og Guðmundar Johnsen formanns félagsins.
Endilega hafið samband við okkur ef það er eitthvað sem þið viljið koma á framfæri.