Aðalfundur Félags lesblindra á Íslandi 2026
Aðalfundur Félags lesblindra á Íslandi var haldinn föstudaginn 15. maí 2026 í húsnæði félagsins að Ármúla 7B, Reykjavík. Fundurinn var boðaður félagsmönnum með hefðbundnum hætti og fór fram samkvæmt fundarsköpum.
Á fundinum voru lagðar fram ársskýrsla stjórnar og ársreikningur félagsins fyrir starfsárið 2025. Bæði gögn voru samþykkt samhljóða. Engin framboð bárust til stjórnar og var sitjandi stjórn því endurkjörin óbreytt.
Félag lesblindra á Íslandi er aðildarfélag ÖBÍ réttindasamtök og skilar árlega ársskýrslu og ársreikningi til bandalagsins. Félagsmenn sem vilja kynna sér þessi gögn geta haft samband við skrifstofu félagsins.
