Styrktu okkur í dag
Félag lesblindra á Íslandi starfar af miklum krafti og hefur stutt við einstaklinga með lesblindu frá árinu 2003. Allt frá stofnun hefur starfsemi félagsins að mestu leyti byggst á framlögum frá almenningi og félagsmönnum. Við erum afar þakklát fyrir allan stuðning.
Það kostar ekkert að skrá sig í félagið en við sendum félagsmönnum valgreiðsluseðil einu sinni á ári upp á 3.000 krónur og vonumst þá eftir stuðningi til að viðhalda starfseminni. Félagið fær ekki fasta fjárveitingu frá ríkinu, en hefur þó notið stuðnings í ákveðnum verkefnum.
Með stuðningi þínum getum við:
- Veitt ókeypis þjónustu: Félagsmenn fá gjaldfrjálsa ráðgjöf og aðstoð á skrifstofu félagsins. Við hjálpum við uppsetningu á stuðningsbúnaði, kennum námstækni og styðjum við betri lestur og skrift.
- Aðstoðað fleiri: Stuðningurinn gerir okkur kleift að halda áfram að aðstoða alla sem þurfa, hvort sem það er aðstoð við að nýta tækni í námi, skilja réttindi eða annað. Eina krafa okkar er að þú sért skráður félagsmaður.
- Styðja við réttindabaráttu: Við vinnum að því að tryggja að réttindi lesblindra séu virt á öllum sviðum samfélagsins.
Bankaupplýsingar
Ef þú vilt styðja okkur, þá eru bankaupplýsingarnar okkar hér:
Eigandi: Félag lesblindra á Íslandi Kennitala: 710303-3390 Reikningsnúmer: 0314-26-003993
Enn og aftur, kærar þakkir fyrir stuðninginn. Hann skiptir okkur miklu máli.
